VIRALIS · STAFRÆN MARKAÐSSETNING
Markviss markaðssetning. Mælanlegur árangur.
Við hjálpum fyrirtækjum að auka sölu og fá fleiri fyrirspurnir með auglýsingum á Meta og Google. Persónulegt samstarf, skýr markmið og gögn sem leiða okkur áfram.
- Sérhæfing
- Auglýsingar á Meta og Google
- Nálgun
- Gögn, mælingar og stöðug þróun
- Samstarf
- Persónulegt, með stuttum boðleiðum
Meðal þeirra sem við höfum unnið með
- Reykjavíkurborg
- Celsius
- Nordic
Travel Group - Biofit
- Regus
- Myndform
- Nicetravel
- Sbarro
- Júník
- Opus Futura
- Tölvuaðstoð
- Vilma Home
Sjá fleiri fyrirtækiSýna færri fyrirtæki
- Bílrúðan
- Birdie
- Jax Handverk
- Oche
- Sviðið
- Miðbar
- Elensa
- Fotomax
- Gjaldskil
- Grazie Trattoria
- Kvikk
- Ólafsson Gin
- Sign Jewelry
- Símahulstur.is
- Snilldarvörur
Þjónusta
Það sem við gerum
Við tengjum saman auglýsingar, efni og mælingar svo markaðsstarfið vinni að sömu markmiðum.
-
Meta-auglýsingar
SérhæfingVið skipuleggjum, setjum upp og fínstillum auglýsingar á Facebook og Instagram með skýr markmið að leiðarljósi.
-
Google-auglýsingar
SérhæfingVið hjálpum þér að ná til fólks þegar það leitar að vörunum eða þjónustunni sem þú býður.
-
Mælingar og árangursgreining
Við setjum upp mælingar og greinum niðurstöður svo þú sjáir hvað skilar árangri og hvar tækifærin liggja.
-
Tölvupóstsmarkaðssetning
Við búum til tölvupósta og sjálfvirk póstflæði sem halda sambandi við viðskiptavini og hvetja til endurtekinna viðskipta.
-
Efnisgerð fyrir auglýsingar
Við framleiðum grafík og myndbönd sem taka mið af vörumerkinu, markhópnum og miðlinum þar sem efnið birtist.
-
Vefsíður og lendingarsíður
Við hönnum skýrar og aðgengilegar síður sem kynna það sem þú býður og auðvelda fólki að taka næsta skref.
Um okkur
Gott samstarf skilar sér.
Viralis var stofnað árið 2023 af tveimur ungum markaðsmönnum. Við vinnum náið með fyrirtækjum að því að gera markaðsstarfið markvissara, með skýr markmið, vandað efni og mælingar að leiðarljósi.
Við leggjum áherslu á að skilja reksturinn þinn, vörumerkið og fólkið sem þú vilt ná til. Þannig getum við mótað markaðsstarf sem tekur mið af því sem skiptir fyrirtækið þitt máli.
Persónulegt samstarf
Við kynnumst fyrirtækinu og vinnum með þér að markmiðunum.
Stuttar boðleiðir
Bein samskipti og gott aðgengi að fólkinu sem vinnur að verkefnunum.
Skýr sýn á árangur
Við útskýrum hvað við erum að gera, hvers vegna og hvað niðurstöðurnar segja okkur.
Umsagnir
Samstarfið í orðum viðskiptavina
„Mikill heiður að fá að vinna með ykkur, hef unnið með nokkuð mörgum að markaðsmálum í gegnum tíðina og þið trónið á toppnum. Líka alltaf gaman að vinna með ungu kynslóðinni, hún lætur verkin tala og gerir það hratt.“
„Við höfum átt frábært samstarf við Viralis og látum þau sjá um mörg markaðstengd verkefni með góðum árangri. Það er mjög gott að vita af umsjón með öllum miðlum, hugmyndavinnu, efnisgerð og fleiri verkefnum í góðum höndum. Ég get heilshugar mælt með Viralis“
„Frábær og lausnamiðuð þjónusta. Áreiðanlegir og alltaf til taks. Vönduð efnissköpun og góð samskipti heilt yfir“.
„Við hjá Biofit byrjuðum að vinna með Viralis þegar við vorum rétt að stíga fyrstu skrefin með vörumerkið – og þau hafa staðið þétt við bakið á okkur frá upphafi. Það er ómetanlegt að hafa haft svo öflugt markaðsfólk með sér í liði þegar maður er að byggja upp eitthvað nýtt.“
„Það sem stendur sérstaklega upp úr er hversu vel þau skilja vörumerkið okkar og markhópinn – og bregðast hratt og skapandi við þegar við viljum prófa nýja hluti. Við höfum verið í frábæru samstarfi við teymið þeirra, sem er alltaf til í að hugsa út fyrir boxið og hjálpa okkur að vaxa.“
„Í einu orði sagt stóðu þeir sig frábærlega. Allt stóðst sem þeir gerðu og sögðu. Ég mun halda áfram að skipta við þá í framtíðinni. Bestu þakkir.“
Traust. Samvinna. Árangur.
Ræðum markaðsmálin þín.
Segðu okkur frá fyrirtækinu þínu og því sem þú vilt ná fram. Bókaðu kynningarfund og við ræðum hvernig við getum hjálpað.
Viltu frekar senda okkur línu?
viralis@viralis.is